Samþætt þjónusta
Markmið
Markmið þjónustunnar í öryggisíbúðum Eirar er að styðja íbúa til að lifa sjálfstæðu og virku lífi sem lengst. Áhersla er lögð á að styrkja daglega virkni og styðja við færni, félagslíf og vellíðan, einnig þegar veikindi eða heilsubrestur gera vart við sig. Þjónustan miðar að því að íbúar geti áfram tekið virkan þátt í eigin lífi, með aðgengi að ráðgjöf, stuðningi og fræðslu um heilsu og forvarnir, á forsendum hvers og eins. Þjónustan byggist á samþættingu og samstarfi allra þeirra sem koma að velferð íbúanna, þar á meðal aðstandenda, heilbrigðisstarfsfólks, félagsþjónustu og annarra þjónustuaðila.
Öryggi
Í öllum íbúðum eru neyðarhnappar sem íbúar geta notað allan sólarhringinn vegna veikinda eða annarra neyðartilvika. Neyðarkalli er svarað af starfsfólki á vakt, sem kemur einnig í vitjun samkvæmt samkomulagi og samningi og sinnir heimahjúkrun og/eða stoðþjónustu. Á næturvöktum sinna starfsmenn neyðarköllum. Ef þörf er á innliti að næturlagi er það útfært í samráði við næturþjónustu heimahjúkrunar Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar um öryggis- og heimaþjónustu eru veittar í hæfniviðtali fyrir flutning í íbúð.

Samþætt heimaþjónusta
Sú þjónusta sem samið er um grundvallast á lögum um félagslega þjónustu sveitarfélaga og lögum um heilbrigðisþjónustu. Þeir íbúar sem fá bæði félagslega stoðþjónustu og heimahjúkrun njóta samþættrar þjónustu sem skipulögð er í samvinnu við deildarstjóra heimaþjónustu í öryggisíbúðum Eirar.
Þjónustan getur t.d. falist í:
Heimahjúkrun samkvæmt samningi.
Félagslegri stoðþjónustu eða heimastuðningi samkvæmt samningi.
Lyfjapokaskömmtun frá apóteki.
Fjölskyldu- og ættingjaaðstoð.
Stoðþjónustu í matsal, félagsstarfi o.fl.
Annarri þjónustu innanhúss á eigin kostnað, svo sem sjúkraþjálfun með beiðni, hárgreiðsla, fótaaðgerð og snyrting


Heimahjúkrun
Heimahjúkrun er veitt þeim sem búa sjálfstætt en þurfa reglulega heilbrigðisþjónustu. Hún hefst eftir beiðni frá lækni og samþykki frá heimaþjónustu Reykjavíkur og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hjúkrunarfræðingur eða deildarstjóri skipuleggur þjónustuna, sem er að jafnaði veitt af sjúkraliða, félagsliða eða öðrum umönnunarstarfsmanni. Hjúkrunarfræðingur sinnir ákveðnum sérhæfðum verkefnum.
Þjónustan fer að mestu fram á dagvinnutíma en sinnt er brýnni þörf utan þess tíma eftir atvikum. Reynt er að skipleggja þjónustu til íbúa á ákveðnum tímum en frávik geta verið frá því. Þegar þörf er á fjölþættri heimaþjónustu er hún veitt í samvinnu við aðstandendur og jafnvel með aðkomu annarra þjónustuaðila.
Lyfjatiltekt og heimsending lyfja er á vegum lyfjaverslana og aðstandendur bera ábyrgð á að útvega og endurnýja lyf. Starfsmenn heimahjúkrunar aðstoða við lyfjagjöf og lyfjaeftirlit þegar þess er þörf.
Þar sem þörf er á hjálpartækjum vegna umönnunar, svo sem við böðun eða hreyfingu, meta hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði nauðsyn þess. Læknisvottorð þarf að fylgja umsóknum um hjálpartæki og eru þau, ásamt nauðsynlegum hjúkrunarvörum, að jafnaði niðurgreidd, eða greidd að fullu, af Sjúkratryggingum Íslands.
Heimahjúkrun er kostnaðarlaus fyrir íbúa. Greiða þarf fyrir rannsóknir, s.s. þvag- og blóðrannsóknir. Einnig fyrir umbúðir eða annað efni ef um sérhæfða sáraskiptingu er að ræða og sprautugjafir.
Félagsleg stoðþjónusta og heimastuðningur
Þjónustan er ætluð þeim sem búa í heimahúsum en þurfa aðstoð við heimilishald. Þjónustan er veitt á grundvelli mats frá þjónustumiðstöð í hverfi viðkomandi. Um er að ræða fjölbreytta aðstoð sem sniðin er að þörfum hvers og eins og getur m.a. falið í sér stuðning við daglegt líf, heimilishald, samveru og hvatningu. Fyrir þessa þjónustu greiða íbúar samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins. Á kvöldin og um helgar er þjónustan í formi innlits, stuttrar viðveru eða aðstoðar við lyfjatöku eftir þörfum.
Umsókn um þjónustu
Umsóknareyðublöð vegna heimahjúkrunar eða félagslegrar stoðþjónustu fást í vaktherbergi öryggisíbúða Eirar. Starfsfólk aðstoðar eftir þörfum við útfyllingu og miðlun umsóknar til þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins.
Eftir að umsókn hefur verið móttekin fer matsaðili heim til umsækjanda og metur þörf fyrir þjónustu. Ef umsóknin er samþykkt er gerður þjónustusamningur, sem getur gilt í allt að eitt ár. Að honum liðnum má óska eftir endurnýjun ef þörf er á áframhaldandi þjónustu.