Félagslíf
Félagslíf er hluti af lífinu í öryggisíbúðum Eirar og styður við virkni og vellíðan. Dagskrá og viðburðir eru mismunandi eftir staðsetningum og taka mið af nærumhverfi, áhuga og ólíkum þörfum íbúa.
Ýmiss konar félagsstarf er í boði á hverjum stað fyrir sig.
Úr öryggisíbúðum í Eirborgum er gott aðgengi að félags- og menningarmiðstöðinni Borgum, þar sem Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, heldur utan um fjölbreytta dagskrá. Í Eirarhúsum er meðal annars boðið upp á opna tíma í iðju- og sjúkraþjálfun ásamt sameiginlegum viðburðum á Torginu, á hjúkrunarheimili Eirar og á Eirhömrum er mismunandi dagskrá í boði.
