Eirhamrar
Að Hlaðhömrum 2 í Mosfellsbæ eru Eirhamrar. Þar eru 54 íbúðir sem eru flestar tveggja herbergja en einnig er þar að finna stúdíóíbúðir. Öllum íbúðum fylgir geymsla sem er í flestum tilfellum á fyrstu hæð hússins, en innan íbúðar í stúdíóíbúðum. Matsalur er í Eirhömrum og hann er einnig nýttur fyrir félagsstarf, svo sem spil og fleira. Þá er sameiginlegur sjónvarpssalur, fótaaðgerða- og hárgreiðslustofa.
Matur í Eirhömrum er framreiddur úr eldhúsi Eirar.
Sjá matseðil hér.

Hárgreiðslustofan Hárdís, Hlaðhömrum 2, 270 Mosfellsbæ. Hárgreiðslustofan er staðsett á fyrstu hæð að Eirhömrum.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 10:00-14:00.
Ingibjörg Erlingsdóttir, hárgreiðslumeistari.
Tímapantanir í síma 859 2800 eða á netfanginu: skerpla77@gmail.com
Fótaaðgerðastofa Evu Eðvalds, Hlaðhömrum 2, 270 Mosfellsbæ.
Fótaaðgerðastofan er staðsett á fyrstu hæð að Eirhömrum.
Opið alla virka daga eftir pöntunum.
Eva Eðvalds, löggiltur fótaaðgerðafræðingur og nuddari.
Tímapantanir í síma 698 7864 og á netfangið: evaedvalds@gmail.com
Gestaherbergi eru til staðar á Eirhömrum í Mosfellsbæ. Hægt er að leigja gestaherbergi fyrir ættingja eða gesti sem koma t.d. utan að landi eða erlendis frá. Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 522 5758 eða á netfanginu ibudir@eir.is