Eirarhús í Grafarvogi

Eirarhús eru staðsett við hliðina á hjúkrunarheimilinu Eir, nánar tiltekið að Hlíðarhúsum 3-5 í Grafarvogi. Innangengt er á milli húsanna og eru ýmsir viðburðir sameiginlegir hjá íbúum öryggisíbúða, hjúkrunarheimilisins og endurhæfingar Eirar. Þar má nefna bingó, söngstundir og opna tíma iðju- og sjúkraþjálfunarsal með góðum tækjabúnaði. Í Eirarhúsum eru 34 öryggisíbúðir, flestar tveggja herbergja, en tvær íbúðir eru þriggja herbergja. Öllum íbúðum fylgir geymsla í kjallara. Í Eirarhúsum eru tvö gestaherbergi sem hægt er að leigja gegn vægu gjaldi.

Matur í Eirarhúsum er framreiddur úr eldhúsi Eirar.
Sjá matseðil hér.

Hárgreiðslustofan Eir, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Hárgreiðslustofan er staðsett á fyrstu hæð.
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 09:00-14:00.
Sif Sveinsdóttir, hársnyrtisveinn.
Tímapantanir í síma 522 5766 eða á netfanginu: sifsveinsd@gmail.com

Fótaaðgerðastofa Ágústu, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Fótaaðgerðastofan er staðsett á fyrstu hæð.
Opið alla virka daga eftir pöntunum.
Guðrún Ágústa Ólafsdóttir, löggiltur fótaaðgerðafræðingur og sjúkraliði.
Tímapantanir í síma 895 3025 eða á netfanginu: finartaer@gmail.com

Gestaherbergi eru til staðar í Eirarhúsum í Grafarvogi. Hægt er að leigja gestaherbergi fyrir ættingja eða gesti sem koma t.d. utan að landi eða erlendis frá. Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 522 5758 eða á netfanginu ibudir@eir.is