Eir öryggisíbúðir
Eir öryggisíbúðir ehf. er sjálfstætt félag í eigu Eirar, sjálfseignarstofnunar. Félagið er óhagnaðardrifið og starfar á grundvelli samfélagslegrar ábyrgðar. Eir öryggisíbúðir ehf. hefur sjálfstæða stjórn og eigið regluverk en starfar í nánu samstarfi við aðrar einingar innan Eirar-samstæðunnar.
Tilgangur félagsins er uppbygging og útleiga húsnæðis fyrir eldri borgara og markmiðið er að skapa traust, öruggt og vandað búsetuumhverfi.
Eir öryggisíbúðir er óhagnaðardrifið félag og allur hagnaður er nýttur til eflingar starfseminnar, verkefna á sviði öldrunar- heilbrigðis-, mennta- og menningarmála og annarra verkefna sem styðja við velferð eldri borgara.