Eirborgir í Grafarvogi
Í Eirborgum, að Fróðengi 1-11 í Grafarvogi, eru 109 öryggisíbúðir á vegum Eirar. Þær eru í mismunandi stærðum, allt frá stúdíóíbúðum að þriggja herbergja íbúðum. Öllum íbúðum fylgir geymsla í kjallara. Innangengt er á milli húsa og í félags- og þjónustumiðstöðina Borgir, þar sem er að finna mötuneyti, hárgreiðslustofu, fótaaðgerðastofu og fjölbreytt félagsstarf Korpúlfa. Örstutt er í Spöngina þar sem er að finna fjölbreyttar verslanir, bakarí, veitingastaði, bókasafn, heilsugæslu og fleira. Í Eirborgum eru ekki gestaherbergi en aðstandendur íbúa geta leigt gestaherbergi í Eirarhúsum og Eirhömrum gegn vægu gjaldi.
Í Eirborgum er mötuneyti í Borgum, þar sem maturinn kemur frá Reykjavíkurborg.
Sjá matseðil hér.
Hárgreiðslustofan Hárborg, Spönginni 43, 112 Reykjavík.
Hárgreiðslustofan er staðsett í Borgum, þjónustumiðstöð Reykjavíkur.
Opið alla virka daga kl. 10:00-16:00.
Erna Ó. Eyjólfsdóttir, hárgreiðslumeistari.
Tímapantanir í síma 571 7474
Fótaaðgerðastofa Hrafnhildar, Spönginni 43, 112 Reykjavík. Fótaaðgerðastofan er staðsett í Borgum, þjónustumiðstöð Reykjavíkur.
Opið alla virka daga eftir pöntunum.
Hrafnhildur Hjálmarsdóttir, löggiltur fótaaðgerðafræðingur.
Tímapantanir í síma 571 7475 / 620 4195 eða í netfanginu: hrafnhildur65@gmail.com
