Algengar spurningar og svör
Almennar upplýsingar
Fyrir hverja eru Eir öryggisíbúðir
Eir öryggisíbúðir eru leiguíbúðir ætlaðar eldri einstaklingum sem vilja búa sjálfstætt. Markmiðið er að styðja íbúa til sjálfstæðrar búsetu sem lengst, jafnvel þótt heilsubrestur eða veikindi geri vart við sig.
Hvar eru öryggisíbúðir Eirar staðsettar?
Eir öryggisíbúðir eru á þremur staðsetningum á höfuðborgarsvæðinu:
Eirarhús, Hlíðarhúsum 3–5, Reykjavík – 34 íbúðir.
Eirborgir, Fróðengi 1–11, Reykjavík – 109 íbúðir.
Eirhamrar, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ – 54 íbúðir.
Hvað eru íbúðirnar stórar?
Íbúðirnar eru í ýmsum stærðum, frá stúdíóíbúðum að þriggja herbergja íbúðum.
Í Eirarhúsum eru flestar íbúðir tveggja herbergja (70,8–88 m²) en tvær íbúðir eru þriggja herbergja (87,2–89,0 m²).
Í Eirborgum eru stúdíóíbúðir (45,7–48,8 m²), tveggja herbergja íbúðir (69,2–88,0 m²) og þriggja herbergja íbúðir (94,0–98,5 m²).
Í Eirhömrum eru stúdíóíbúðir (22,0–38,3 m²) og tveggja herbergja íbúðir (51,9–89,9 m²).
Fylgir geymsla?
Já, í flestum tilfellum eru geymslur á neðstu hæð eða í kjallara húsanna, en í sumum stúdíóíbúðum eru geymslur innan íbúðar.
Er mötuneyti og félagsstarf í boði?
Já, mötuneyti og fjölbreytt félagsstarf er í boði. Upplýsingar um framboð er að finna í upplýsingamöppu og á upplýsingatöflum í hverju húsi fyrir sig.
Hvað kostar að leigja í öryggisíbúð?
Leiguverð fer eftir stærð og staðsetningu íbúðar. Leiguverð fylgir breytingum á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.
Hvað er innifalið í leiguverði?
- Öryggiskerfi og vöktun
- Hiti í íbúð og sameign
- Rafmagn í sameign
- Ræsting sameignar
- Snjómokstur og lóðaumhirða
- Sorphirða
- Almennt viðhald og tryggingar hússins
Hvað er ekki innifalið í leiguverði?
Rafmagn innan íbúðarinnar og heimilis- og innbústrygging er ekki innifalin í leigu íbúðar. Laus öryggisrofi (tæki sem einstaklingur ber á sér) er ekki innifalinn í leiguverði en hægt er að leigja hann sérstaklega.
Get ég fengið húsnæðisbætur?
Leigutakar hjá öryggisíbúðum Eirar hafa sömu réttindi og aðrir á almennum leigumarkaði til húsnæðisbóta. Sótt er um húsnæðisbætur á vefnum island.is. Þar er einnig að finna reiknivél húsnæðisbóta.
Umsókn, biðlisti og úthlutun
Hvernig sæki ég um öryggisíbúð?
Fylltu út umsókn hér á vefnum. Ef engin íbúð er laus geymum við umsóknina á biðlista og höfum samband þegar við getum boðið þér að skoða íbúð sem gæti hentað.
Hversu langur er biðlistinn?
Biðtími er mismunandi eftir tegund og staðsetningu íbúðar sem óskað er eftir. Nánari upplýsingar um stöðu biðlista hverju sinni er hægt að fá með því að senda fyrirspurn á ibudir@eir.is
Kostar eitthvað sækja um eða vera á biðlista?
Nei, það er ókeypis að senda inn umsókn og að vera á biðlista.
Þarf að leggja fram leigutryggingu?
Já, leigutaki leggur fram tryggingu fyrir réttum efndum á leigusamningnum áður en afhending íbúðar fer fram. Tryggingafé af hálfu leigutaka jafngildir upphæð þriggja mánaða leiguverði íbúðar. Leigutrygging er greidd í formi tryggingafés sem leigjandi greiðir inn á reikning leigusala. Það er varðveitt á óbundnum reikningi hjá viðskiptabanka sem ber svo háa vexti sem kostur er sbr. húsaleigulög.
Er gerð úttekt við afhendingu íbúðar?
Já, það er gerð úttekt á ástandi íbúðarinnar við afhendingu og einnig lögbundin úttekt á brunavörnum.
Þjónusta og upplýsingar fyrir leigutaka
Hvað þarf ég að vita þegar ég flyt inn?
Við afhendingu íbúðar er farið yfir öll helstu atriði og leigutaki fær afhenta upplýsingamöppu sem inniheldur m.a. upplýsingar um félagsstarf, mötuneyti, símanúmer og fleira.
Hvaða þjónusta er í boði samhliða búsetu?
Í boði er þjónusta eftir þörfum, m.a. heimahjúkrun, heimastuðningur, lyfjaskömmtun, þrif og aðstoð við daglegar athafnir, samkvæmt mati og þjónustusamningi.
Hvernig er þjónustuþörf metin?
Þjónustuþörf og hæfni til sjálfstæðrar búsetu er metin í viðtali áður en leigusamningur er gerður.
Hvernig er öryggi tryggt í íbúðunum?
Allar íbúðir eru með neyðarhnöppum sem tengist vöktun allan sólarhringinn.
Er hægt að óska eftir flutningi á milli íbúða?
Já, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um frágang og uppgjör íbúðar sem flutt er úr.
Eru gæludýr leyfð?
Dýrahald er aðeins heimilt með skriflegu samþykki leigusala og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Leigusali áskilur sér rétt til að afturkalla leyfið hvenær sem er.
Get ég fengið sérmerkt bílastæði?
Hægt er að óska eftir sérmerktum númeraplötum, en þær eru eingöngu útbúnar fyrir hreyfihamlaða með útgefin P- merki frá sveitarfélaginu.
Hvert sný ég mér ef eitthvað bilar?
Ef þörf er á viðhaldi eða lagfæringum á eignum Eirar skal hafa samband við skrifstofu Eirar í síma eða með tölvuposti á skrifstofa@eir.is. Leigusali ber ábyrgð á almennu viðhaldi fasteignarinnar en íbúar bera ábyrgð á smávægilegum verkum innan íbúðar, svo sem að skipta um perur, losa stíflur og þess háttar. Hægt er að panta útselda þjónustu vegna slíkra verka og þá er rukkað skv. verðskrá.
Hvernig kem ég ábendingum á framfæri?
Með tölvupósti á ibudir@eir.is, símtali á skrifstofu eða í gegnum ábendingahnapp á vef Eirar
Hversu langur er uppsagnarfresturinn?
Uppsagnarfrestur leigutaka og leigusala er 6 mánuðir.
Hvernig fer skil íbúðar fram?
Íbúð skal skila í sama ástandi og tekið var við henni í sbr. húsaleigusamning. Gerð er sameiginleg úttekt íbúðar við skil.
Hvenær fæ ég trygginguna endurgreidda?
Trygging er endurgreidd þegar uppgjör hefur farið fram, um tveimur vikum eftir að standsetningu íbúðar er lokið.